Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

That´s the way....aha aha...I like it.....aha aha.....

Síðustu 2 vikur maður........bara yndislegar. Búin að vera með son minn og það er búið að vera æði. Ég er sem sagt hætt með Össa og flutt í geggjaða íbúð í Kópavogi....við hliðina á lauginni, svo maður er alltaf í sundi. Vá hvað mér líður vel hérna......blómstra réttast sagt. Sá sérstaki er í Kína og búinn að vera lengi en fer nú að koma heim Grin jibbííííí - hlakka til að sjá hann.

Sonur minn fer til pabba síns á föstudag og þá verður tekið gott djamm........er svei mér þá farin að sakna úlfanna....ótrúlegt en satt. Ætli maður stefni ekki á Dillon og Amsterdam eftir það. Úff.

En jæja....aftur í sólbað.....get ekki verið lengur inni. Bless í bili.


PÆLING

Eftir 32 ár á vígvellinum lá ég fallin fyrir eigin sverði, löngu búin að gleyma við hvern ég barðist og af hverju, lá bara í forinni með sverðið á kafi í hjartanu og pældi, "að VERA eða EKKI VERA, það er spurningin". Er það spurningin? Hmm það læddist að mér hugsun, en að vera BARA. Hvorki að VERA né EKKI VERA, heldur að BARA VERA. Ég allt í einu áttaði mig á því að síðustu ár hafði ég geyst um vígvöllinn söðluð rugguhesti og vopnuð túttubyssu og pottloki. Mildi er að ég þraukaði þar allan þennan tíma innan um risavaxna fáka með verðuga, viljuga og vel vopnaða stríðsmenn á baki. Var vissulega bara svo mikið lægri að það tók enginn eftir mér, ég sást varla. Og þessir örfáu sem urðu við mig varir þarna niðri í forinni hlógu og hæddust að mér, hreyttu í mig óyrðum og hræktu. En ég í minni blindandi trú um verðugleika minn og getu hrökklaðist þarna um, snýtti mér í ermina og stóð vörn sem sókn, hnakkhreyst sem aldrei fyrr. Með pottloki varðist ég hnífsoddum og skaut mína andstæðinga baunaskotum með köldu blóði, hvergi hrædd. En þarna lá ég og staðreyndin "BARA VERA" sló mig utan undir sem blaut bleyja. Allur þessi tími, öll þessi barátta, þrautsegja, atorka og trú. Eins og blindur maður í bíó. Ég átti aldrei von, ég veit það fyrir vissu því ég svipti mig henni sjálf. Tel mig þó lánsama að hafa þraukað svo lengi og lifað af. Blauta bleyjan gaf mér annan löðrung og hann fékk ég fyrir að eiga eftir allt saman veglegt vopnabúr sjálf og brynjur fleiri en fimm. Ég stóð upp úr þessum drullupolli sem vígvöllurinn er orðinn að og losaði sverðið úr brjósti mínu. Það blæddi ekkert, ekki einn rauðasti dropi. Sverðið var gljáandi hreint og ég hélt því í höndum mínum furðu lostin. Kalt og þungt högg fékk ég í þriðja sinn frá blautu bleyjunni og sá þá um leið að ég hélt ekki á sverði, hafði ekki verið stungin og ég var ekki fallin. Ég hélt á minni eigin túttubyssu, búin með allar baunirnar og marbletti hér og þar því til skýringar. Ég lá aldrei fallin fyrir eigin sverði því ekkert var sverðið. Í undrun minni og gleði ég valhoppaði út fyrir vítateig stríðsins, með hor í nös og skít að eyrum, himinlifandi yfir þessari löngu tímabæru uppgvötun. Ekki mun ég aftur heyja stríð í blindni og vonleysi, aldrei mun ég aftur heyja stríð. En ef það kemur og sækir mig mun ég opna hlerann að mínu vopnabúri, byrgja mig vel og söðla stærsta fákinn minn. Þá mun ég berjast sem aldrei fyrr með verðugleika, virðingu og stolt í fararbroddi.

ÉG VIL EKKI BARA VERA - ÉG VIL VERA - ÉG ER !


Róleg helgi að baki.....

Ég svaf alla helgina og hafði það svaka næs, er að fá mér öl núna og lífið er ágætt. Ég er reyndar á fullu að finna mér nýtt húsnæði og vona að það fari að gerast, get ekki staðið í svona sko........hana nú. Ég er byrjuð að flakka aftur og þó svo að ég eigi að sjálfsögði ennþá heima hér ennþá í Stórholtinu þá reyni ég að vera sem minnst hérna. Vil bara fá að líða vel, er það til of mikils að ætlast? Maður spyr sig.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband