Ja hérna...

Er engin smuga út úr þessu helv... 50 akreina hringtorgi sem ég virðist vera föst í endalaust ? Er ekki einu sinni viss hvort að það er innsti hringurinn sem á réttinn hérna eða hvort það borgi sig ekki bara fyrir mig að reyna að komast sem fyrst út úr þessu og taka hvert tækifæri sem mér gefst til þess að svína mér leið utar. Hringirnir eru langir, færðin orðin slæm og umferðin verður bara harðari og þéttari með hverri mínútunni - ég orðin yfirmáta þreytt, pirruð, ringluð og einfaldlega komin með helþétta andlega garnaflækju af öllu þessu endalausa hringsóli.....ÚFF. Mig langar samt núna bara helst að stansa, kyrrsetja mig í miðri sultudrullunni og hvílast í smá tíma. Aðeins að fá að anda léttar og ná áttum - taka bara með glöðu geði öllum öskrunum og fokkmerkjunum frá snargeðtruflaða pakkinu sem truntast framhjá mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

er ekki bara ad gefa stefnuljos og mjaka ser rolega ut ur umferdini,leggja svo bara og draga andann.Passa sig svo bara a stodumaelasektum:+}

varkar bilstjori (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband