Færsluflokkur: Bloggar

GÖMUL PÆLING

Eftir 32 ár á vígvellinum lá ég fallin fyrir eigin sverði, löngu búin að gleyma við hvern ég barðist og af hverju, lá bara í forinni með sverðið á kafi í hjartanu og pældi, "að VERA eða EKKI VERA, það er spurningin". Er það spurningin? Hmm það læddist að mér hugsun, en að vera BARA. Hvorki að VERA né EKKI VERA, heldur að BARA VERA. Ég allt í einu áttaði mig á því að síðustu ár hafði ég geyst um vígvöllinn söðluð rugguhesti og vopnuð túttubyssu og pottloki. Mildi er að ég þraukaði þar allan þennan tíma innan um risavaxna fáka með verðuga, viljuga og vel vopnaða stríðsmenn á baki. Var vissulega bara svo mikið lægri að það tók enginn eftir mér, ég sást varla. Og þessir örfáu sem urðu við mig varir þarna niðri í forinni hlógu og hæddust að mér, hreyttu í mig óyrðum og hræktu. En ég í minni blindandi trú um verðugleika minn og getu hrökklaðist þarna um, snýtti mér í ermina og stóð vörn sem sókn, hnakkhreyst sem aldrei fyrr. Með pottloki varðist ég hnífsoddum og skaut mína andstæðinga baunaskotum með köldu blóði, hvergi hrædd. En þarna lá ég og staðreyndin "BARA VERA" sló mig utan undir sem blaut bleyja. Allur þessi tími, öll þessi barátta, þrautsegja, atorka og trú. Eins og blindur maður í bíó. Ég átti aldrei von, ég veit það fyrir vissu því ég svipti mig henni sjálf. Tel mig þó lánsama að hafa þraukað svo lengi og lifað af. Blauta bleyjan gaf mér annan löðrung og hann fékk ég fyrir að eiga eftir allt saman veglegt vopnabúr sjálf og brynjur fleiri en fimm. Ég stóð upp úr þessum drullupolli sem vígvöllurinn er orðinn að og losaði sverðið úr brjósti mínu. Það blæddi ekkert, ekki einn rauðasti dropi. Sverðið var gljáandi hreint og ég hélt því í höndum mínum furðu lostin. Kalt og þungt högg fékk ég í þriðja sinn frá blautu bleyjunni og sá þá um leið að ég hélt ekki á sverði, hafði ekki verið stungin og ég var ekki fallin. Ég hélt á minni eigin túttubyssu, búin með allar baunirnar og marbletti hér og þar því til skýringar. Ég lá aldrei fallin fyrir eigin sverði því ekkert var sverðið. Í undrun minni og gleði ég valhoppaði út fyrir vítateig stríðsins, með hor í nös og skít að eyrum, himinlifandi yfir þessari löngu tímabæru uppgvötun. Ekki mun ég aftur heyja stríð í blindni og vonleysi, aldrei mun ég aftur heyja stríð. En ef það kemur og sækir mig mun ég opna hlerann að mínu vopnabúri, byrgja mig vel og söðla stærsta fákinn minn. Þá mun ég berjast sem aldrei fyrr með verðugleika, virðingu og stolt í fararbroddi.

ÉG VIL EKKI BARA VERA - ÉG VIL VERA - ÉG ER !


I feel good

Hæ allir. Rosalega líður mér vel í dag. Sólin skín og allt stefnir upp á við - sem er gott. Ég er að ná aftur eðlilegum húðlit og heilsu eftir ákveðin "veikindi" og í dag líður mér bara nokkuð vel. Ég er að fara í sund á eftir og svo er stefnan sett á ball á morgun á Sódómu Reykjavík.

Hæ hæ

Jæja kæra fólk. Það hefur nú ýmislegt á mína daga dregið. Ég spilaði á Cafe Cultura fyrir viku síðan og það gékk ágætlega fyrir utan nokkur tæknileg vandræði. Ég fékk ekki ómerkilegan áhorfendahóp og þar má nefna td Megas, sem kom sérstaklega til að sjá mig spila. Hann sagðist vera nokk ánægður með framistöðu mína Tounge  sem er mjög gott segi ég. Kettlingarnir mínir blómstra og eru búnir að opna augun. Hvílíku dúllurnar sem þeir eru. Annars er ekki mikið í fréttum svo sem. Ég bara róleg og lífið gengur. Ég hef ekki verið mjög virk hérna á netinu undanfarið, fékk eiginlega bara hálfgert ógeð á þessu. En ég virðist eitthvað vera að komast í gang aftur. Sjáum til. Bæ í bili.

Hæ allir.

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér eftir að ég byrjaði í Elektra að ég hef bara ekkert haft tíma til að blogga. Við æfum á hverjum degi fyrir Eurovision og svo eru blaðamenn bara ótrúlega áhugasamir um okkur, nóg að gera í þeim pakkanum. Ó vá, ég vona að við vinnum þessa keppni og förum til Moskvu. Satt að segja hef ég barasta mikla trú á því að það verði einmitt þannig og ég er strax byrjuð að æfa mig í tungumálinu - da, net, mastavia Tounge Ég á afmæli á morgun og er aðeins að halda upp á það í kvöld. Kíki á Dillon, Boston og Ellefuna - svaka stuð. Sjáumst.

 


Eurovision

Nú eru æfingarnar fyrir Eurovision byrjaðar á fullu hjá okkur stelpunum í Elektra og við erum sannarlega með langflottasta atriðið. Ég veit að við rúllum þessu upp og förum út í keppnina. Ég hvet ykkur öll til að fylgjast með nk. laugardag og kjósa okkur. Við verðum í þættinum súper á fm95.7 næsta fimmtudagsmorgunn og ég spila eitt lag sem systurnar sætu í O´hara syngja, en þær eru söngkonur bandsins. Þessi hljómsveit er bara ótrúlega flott og ég hef trú á að við eigum glæstan feril að höndum. Þær eru svo flottar söngkonur systurnar og svo erum við með magnaða bassastelpu og líka trommarastelpu. Ég er auðvitað líka glæsileg á gítarnum Wink  Þetta er mitt stóra tækifæri trúi ég og er einstaklega þakklát að hafa verið beðin um þetta. Spennandi að sjá hvað gerist.

.....

Sæl verið þið nú öll og gleðilega kreppu-kjaftæðis-geðveiki. Shocking Ég vona að sem flestir gangi hægt upp kreppunnar rúllustiga og gleymi sér ekki í öllu stuðinu sem þessu brjálæði ætlar að fylgja. Sjálf fylgist ég með þessu öllu úr hæfilegri fjarlægð og skammast mín alls ekkert fyrir það. Ég er einfaldlega ekki til í að taka þeim afleiðingum sem geta fylgt í kjölfari þess að taka virkan þátt. Eins og kannski sum ykkar vitið þá stefni ég á lögregluskólann Police á þessu ári - já gott fólk.....ég er nefnilega með tandurhreina og óflekkaða fortíð Halo .....amk frá "skráarlegu" sjónarmiði Bandit og er sannarlega stolt af því. Það mætti þá jafnvel segjatil gamans að ég sé einskonar "hrein mey" Tounge frá "skráarlegu sjónarmiði. Ekki gleyma heilanum heima þegar þið skundið af stað á mótmælin krakkar.....meira segi ég ekki í bili. Bless skess og fress.

 


Ég í Eurovision

Jæja gott fólk, þá ber mér að kynna að ég tek þátt í eurovosion þann 31.janúar nk og ég hvet ykkur öll til að kjósa mig og bandið mitt áfram. Ég, ásamt fjórum öðrum glæsipíum, tek þátt fyrir hönd hins hæfileikaríka Örlygs (sem samdi lagið okkar fyrir Eurobandið í fyrra) og vonandi gengur þetta vel. Ég hef mikla trú á þessu og lít á þetta sem góða reynslu. Annars er ekki mikið að frétta og ég er búin að vera ansi róleg og góð stúlka. Hafið það gott.

Loksins......

Það er nú aldeilis kominn tími til að maður bloggi......langt síðan ég hef fundið hjá mér tíma til að setjast niður og pikki einhverjar pælingar hingað inn. En núna er víst komið að því.....ég er með þörfina, löngunina og tímann. Það er búið að ganga á ýmsu síðan síðast og frá mörgu að segja. En ég ætla ekkert endilega að skrifa um neitt af því. Spurningin er: hvernig líður mér núna......akkúrat  á þessari stundu? Svarið er mér algjörlega óljóst en ég ætla að reyna mitt besta við að komast að einhverri niðurstöðu. Ég er ringluð á öllu í kringum mig og sumt breytist aldrei, ég veit það fyrir víst. Ég veit líka að ég sakna ljósgeislans. Ég er orðin svo innilega þreytt á því að taka afleiðingum þess hversu fólk almennt er orðið siðlaust, svikult, gráðugt, eigingjarnt og blint. Ég finn endalaust úr öllum áttum fyrir því hversu hart fólk leggur að sér við að finna eitthvað af því ofarnefnda í fari mínu. Því þrengri sem leitin verður og örvæntingin í kjölfarinu vex - því hvassara og grófara verður framkoma fólks gagnvart mér. Ég er ekki siðlaus, svikul, gráðug, eigingjörn og blind og ég færist lengra og lengra í gagnstæða átt þess með hverjum deginum sem líður og með hverju eiasta rannsakandi augnarráði fullu efasemda.  

Dansað með úlfum

Er búin að vera í villtum tangó núna við úlfana mína   Whistling  Elska það jafn mikið og ég hata það... nenni bara ekki að dansa meira í bili. STOPP.

Í sveitinni.

Ég er í sveitinni og verð að segja að ég nýt mín hérna og líður svaka vel í kringum dýrin og vini mína Dillu og Sverri tattú. Þau eru yndisleg og dýrin þeirra líka. Ég er í bestu vinnu í heimi, þetta er fyrsta "vinnan" mín í langan tíma og ég verð að segja að ég hef virkilega gott af þessu.

Ég er einstaklega montin af nýja laginu mínu *Again* og það hefur fengið frábærar viðtökur. Þetta lag er gott dæmi um hvernig tónlistarstefna mín og hugarfar mitt er að breytast og mér finnst ég verða sterkari og einbeittari með hverri mínútu.

Ég er komin langt á leið með að koma mér fyrir á nýja staðnum í Hafnarfirði og "pleisið" verður býsna glæsilegt þegar framkvæmdum er lokið. Þetta er stóóóór íbúð á 2 hæðum, svefnherbergið mitt, eldhús og stofan á neðri hæðinni og baðherbergið og stúdió á efri hæðinni. Stofuna ætla ég að mála mosagræna (töff litur við klikkað-flottu hillusamtæðuna og brúna leðursófann) - eldhúsið verður karrígult (töff litur á frekar litlum flöt) - baðherbergið grátt og hvítt (grátt, hvítt og rautt þema) og herbergið mitt verður fjólu-bleikt (án gríns) Tounge mjög svo stelpulegt og sætt.

Ég verð að segja að það er mjög svo þægilegt að geta keyrt vespuna mína beint inn í forstofuna í gegnum bílskúrshurðina (sem er útidyrahurðin mín) Shocking það er bara töff.  

Ég og Tristan sonur minn erum að fara að smíða hænsnakofa næstu helgi. Hann verður bara frekar lítill og sætur, smíðaður og málaður eins og lítið hús með litlum palli og hænsnanet í kring. Svo þegar það er tilbúið sækjum við hænuna okkar hana Elsu. Sverrir og Dilla gáfu okkur hana og það vakti mikla lukka eftir að ástin mín hún Matthildur dó. Elsa er kínversk hæna, svört með rauðan kamb og verpir u.þ.b. 2 eggjum á dag. Hænur eru sniðug gæludýr, það heyrist sama sem ekkert í þeim, þær eru gæfar og svo finnst mér ommuletta góð LoL Nú.....og ef hún Elsa gerir ekki lukku og ég verð þreytt á henni þá er ég svo heppin að finnast kjúklingur líka einstaklega góður W00t hahahaha. Nei nei....bara spaug - hún Elsa verður ekki étin.

En hvað um það.....ég er tilbúin með plötuna mína. Er búin að setja saman 14 laga plötu og hanna bæði diskinn og coverið. Þá er bara eftir að strauja lögunum á geisladiska, prenta og líma á diskana og prenta út coverið. Svo tek ég diskana og læt plasta þá. Þeir verða svo til sölu á tattústofunni hans Sverris - Black Diamond (House of pain) á litlar 2.000 krónur. Ég læt vita þegar þeir eru komnir í sölu!

En, best að fara aftur að vinna. Bless í bili og VINSAMLEGAST VERIÐ DUGLEG AÐ COMMENTA HJÁ MÉR !!  (nýtt símanúmer: 618-6163 og e-mail isa.kisabella@gmail.com)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband