Komdu aftur

Þú sem birtist óvænt eitt miðvikudagskvöld fyrir stuttu á 3. hæð völundarhússins og fangaðir svo samstundis flöktandi athygli mína, horfðir óhræddur óhikað í augun mín - líkt og ég væri óbrotin og elskanleg........komdu aftur. 

Komdu og faðmaðu mig, kysstu mig á kinnina og hrósaðu mér,  ég er ekki lengur hrædd.  Ég get ekki lifað lengur svona harkalega mótuð af lífinu að ég hræðist kærleika og hlýju, ég hræðist það sem ég þekki ekki, ég hræðist það sem hefur meitt mig og ég hræðist mest það sem tengist hjartanu mínu.
Þínu hjarta aftur á móti ætti ég í engum erfiðleikum með að tengjast......það myndi ég gera af sannri einlægni og í gegnum þá tengingu gæfi ég þér umhyggju, ást, skilning og allt það yndislega sem hjartað mitt hefur upp á að bjóða. En sú tenging nær bara aðra leiðina - frá mér til þín. Ég er hvergi smeik við að elska - en lamandi hrædd við að vera elskuð. Ég kann það ekki.

Sú þjáning - að vera elskaður ÞRÁTT FYRIR það hver maður er..........í staðinn fyrir að vera elskaður FYRIR það sem maður er -  markar á endanum sára og neikvæða tilfinningartengingu við það að vera elskaður.

Ég er eingöngu snertanleg og særanleg í gegnum hjartað mitt. Þar geymi ég mikinn og dýrmætan fjársjóð - ómetanleg gull, glitrandi gimsteina og perlur fegurri en allt. Þar á ég líka endalausar uppskerur af tryggð, vinsemd, alúð og ást, dyngjur fullar af vilja, blíðu, samkennd og trú, tunnur nokkrar hlaðnar atorku, gleði og von en ég á eftir aðeins eina, litla kistu af trausti. Við hlið hennar er djúpt tómarúm þar sem eitt sinn stóðu kistur fullar af værð og vellíðan, sjálfsvirðingu, heilindum, heilbrigði og því dýrmætasta af öllu þessu - sakleysi.

Þú sem gafst mér traust þitt og vildir bara fá mitt í staðinn, þú sem bauðst mér fangið þitt til hvíldar og hlýju og þú sem af alvöru lagðir þig fram við að komast í gegnum varnarveginn minn........komdu aftur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert snillingur... þetta er brilljant,  bara  alveg hreint!

Benni (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 16:55

2 Smámynd: Júdas

Ljóðrænt og fallegt.  Takk.

Júdas, 6.4.2008 kl. 20:50

3 identicon

Hann kemur ekki aftur........................

Ísabella (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 22:22

4 Smámynd: Ólafur

:) hver veit?

Ólafur "Tröllabarn" Georgsson, 12.4.2008 kl. 12:08

5 identicon

Tek undir með Júdasi....fallegt og ljóðrænt
Fær mann til að hugsa hehe

Óðinn (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband