TRÚIN OG VONLEYSIÐ

BANK BANK.

Hver er þar?

VARÐSTU EKKI VIÐ MIG VAR ?

Nei, hver ert þú?

ÉG ER ÞÍN TRÚ.

Burt með þig og hananú.

HEY, GEF MÉR SJENS.

Ég held nú síður,
ég er seinn og tíminn líður.

MÁ ÉG EKKI KOMA INN
OG FARA YFIR MÁLSTAÐ MINN?

Nei ég er seinn og tíminn líður,
vonleysið mér eftir bíður.

EKKI FARA, SJÁÐU BARA -
ÞETTA HEF ÉG ÞÉR AÐ BJÓÐA.

Öll þín loforð, þetta allt
skuldar þú mér þúsundfalt.

AF HVERJU?

Þú veist það alveg,
hættu að vola og vertu róleg.

LEYFÐU MÉR AÐ KOMA AFTUR,
ÉG ER BARA SANNUR KRAFTUR.

En þú fórst og sveikst mig illa
og skildir eftir fylgikvilla.
Vonleysið - það kom í staðinn,
er því alveg fullur hlaðinn.

ÉG FÓR ALDREI BURT FRÁ ÞÉR,
ÞAÐ VARST ÞÚ SEM TÝNDIR MÉR.

Var það þannig - eitthvað man ég.

SÉRÐU NÚNA SÖNNU TRÚNA?

Já, ég sé þig, man og vil þig.
Vonleysið nú skilur við mig.
Nú við erum aftur eitt -
því mun enginn getað breytt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband