Færsluflokkur: Bloggar
Bloggar | 2.9.2008 | 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég komst heim með flugi um kvöldmatarleiti í fyrradag og var alveg dauðuppgefin. Henti mér í náttföt og upp í sófa þar sem ég lá í algjörum dvala þangað til ég vaknaði svo í gærmorgun að drepast úr hungri. Ég áttaði mig ekki á því hvað mér virkilega líður vel hérna í Kópavogi fyrr en ég fór í þetta stutta ferðalag á Egilsstaði og ég skil núna að heima er þar sem hjartað er. Hérna á ég mér hreiður, hérna er friðsælt og ljúft að vera, hérna er kisan mín og vinir mínir sem elska mig og passa mig - hérna er hjartað mitt og hér á ég heima. Loksins, loksins finn ég aftur fyrir þeirri tilfinningu og hún er mun dýrmætari en margan grunar. Þessi tilfinning er hjá flestum tekin sem sjálfsögð og alls ekki metin sem slík gersemi sem hún er.
Ég tók gærkvöldið með stæl. Byrjaði kvöldið á því að fara í gömlu sundhöllina og hafa það dásamlegt þar. Svo tók ég mér tíma í að gera mig sæta og henti mér svo á pöbbarölt. Það var ágætt en ekki meira en það. Enda dreif ég mig heim.
Núna er á dagskrá hjá mér að nálgast tölvurnar mínar tvær sem hafa verið í viðgerð og helst að fara að taka upp tónlist. Vonandi gengur það eftir.
En hey....hafið það gott. Bæ í bili krakkar.
Bloggar | 15.8.2008 | 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ljósgeisli - það er að mínu mati eitt fallegasta orðið af öllum þeim orðum sem nýyrðisnefnd okkar Íslendinga hefur splæst saman í gegnum tíðina. Skynvilla finnst mér líka afar áhugavert orð.
Ég er ekki heima núna. Að vera fjarri öllu og öllum sem ég þekki er svolítið ónotalegt finnst mér. Ég er að reyna að finna þessa öruggu óöryggistilfinningu sem ég er svo löngu orðin vön og farin að kunna vel við - en ég finn hana hvergi. Þess í stað finn ég bara til óöruggs öryggis. En ég fer aftur heim í dag svo ég ætla ekki að vera að stressa mig á þessari nýju líðan minni. Ég er sem sagt á Egilsstöðum, skrapp hingað í fyrradag í smá heimsókn og líkar alveg ágætlega við bæinn. Ég hlakka bara til að koma heim.....þar líður mér best, þar og heima hjá þeim sérstaka. Er orðlaus og döpur akkúrat núna. Skrifa meira á eftir. Bæ.
Bloggar | 13.8.2008 | 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Síðustu 2 vikur maður........bara yndislegar. Búin að vera með son minn og það er búið að vera æði. Ég er sem sagt hætt með Össa og flutt í geggjaða íbúð í Kópavogi....við hliðina á lauginni, svo maður er alltaf í sundi. Vá hvað mér líður vel hérna......blómstra réttast sagt. Sá sérstaki er í Kína og búinn að vera lengi en fer nú að koma heim jibbííííí - hlakka til að sjá hann.
Sonur minn fer til pabba síns á föstudag og þá verður tekið gott djamm........er svei mér þá farin að sakna úlfanna....ótrúlegt en satt. Ætli maður stefni ekki á Dillon og Amsterdam eftir það. Úff.
En jæja....aftur í sólbað.....get ekki verið lengur inni. Bless í bili.
Bloggar | 30.7.2008 | 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eftir 32 ár á vígvellinum lá ég fallin fyrir eigin sverði, löngu búin að gleyma við hvern ég barðist og af hverju, lá bara í forinni með sverðið á kafi í hjartanu og pældi, "að VERA eða EKKI VERA, það er spurningin". Er það spurningin? Hmm það læddist að mér hugsun, en að vera BARA. Hvorki að VERA né EKKI VERA, heldur að BARA VERA. Ég allt í einu áttaði mig á því að síðustu ár hafði ég geyst um vígvöllinn söðluð rugguhesti og vopnuð túttubyssu og pottloki. Mildi er að ég þraukaði þar allan þennan tíma innan um risavaxna fáka með verðuga, viljuga og vel vopnaða stríðsmenn á baki. Var vissulega bara svo mikið lægri að það tók enginn eftir mér, ég sást varla. Og þessir örfáu sem urðu við mig varir þarna niðri í forinni hlógu og hæddust að mér, hreyttu í mig óyrðum og hræktu. En ég í minni blindandi trú um verðugleika minn og getu hrökklaðist þarna um, snýtti mér í ermina og stóð vörn sem sókn, hnakkhreyst sem aldrei fyrr. Með pottloki varðist ég hnífsoddum og skaut mína andstæðinga baunaskotum með köldu blóði, hvergi hrædd. En þarna lá ég og staðreyndin "BARA VERA" sló mig utan undir sem blaut bleyja. Allur þessi tími, öll þessi barátta, þrautsegja, atorka og trú. Eins og blindur maður í bíó. Ég átti aldrei von, ég veit það fyrir vissu því ég svipti mig henni sjálf. Tel mig þó lánsama að hafa þraukað svo lengi og lifað af. Blauta bleyjan gaf mér annan löðrung og hann fékk ég fyrir að eiga eftir allt saman veglegt vopnabúr sjálf og brynjur fleiri en fimm. Ég stóð upp úr þessum drullupolli sem vígvöllurinn er orðinn að og losaði sverðið úr brjósti mínu. Það blæddi ekkert, ekki einn rauðasti dropi. Sverðið var gljáandi hreint og ég hélt því í höndum mínum furðu lostin. Kalt og þungt högg fékk ég í þriðja sinn frá blautu bleyjunni og sá þá um leið að ég hélt ekki á sverði, hafði ekki verið stungin og ég var ekki fallin. Ég hélt á minni eigin túttubyssu, búin með allar baunirnar og marbletti hér og þar því til skýringar. Ég lá aldrei fallin fyrir eigin sverði því ekkert var sverðið. Í undrun minni og gleði ég valhoppaði út fyrir vítateig stríðsins, með hor í nös og skít að eyrum, himinlifandi yfir þessari löngu tímabæru uppgvötun. Ekki mun ég aftur heyja stríð í blindni og vonleysi, aldrei mun ég aftur heyja stríð. En ef það kemur og sækir mig mun ég opna hlerann að mínu vopnabúri, byrgja mig vel og söðla stærsta fákinn minn. Þá mun ég berjast sem aldrei fyrr með verðugleika, virðingu og stolt í fararbroddi.
ÉG VIL EKKI BARA VERA - ÉG VIL VERA - ÉG ER !
Bloggar | 15.7.2008 | 17:24 (breytt 19.5.2010 kl. 18:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 13.7.2008 | 22:28 (breytt kl. 22:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 25.6.2008 | 16:03 (breytt 28.6.2008 kl. 17:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tvö elstu börnin mín eru komin til Íslands þau komu 9.júní og verða hjá mér í tæpar þrjár ljúfar vikur.
Þau heita Elísabet Rós (12 ára) og Daníel Roberto (10 ára) og hafa búið síðastliðin þrjú ár í Noregi hjá föður sínum, unnustu hans og tveimur dætrum hennar.
Það er svolítið kostulegt hvað þau hafa breyst mikið, stækkað og þroskast síðan þau voru hjá mér í fyrra. Dóttir mín er komin með þessa fínu unglingaveiki og þeir eru ekki margir sentimetrarnir sem vantar upp á að hún nái mér í hæð frekar skondið finnst mér. Ég er búin að fara með þau í sund á hverjum degi og við erum núna búin að þræða flestar helstu sundlaugar stóra höfuðborgarsvæðisins - hvorki meira né minna. Það er sem sagt alveg nóg að gera hjá mömmunni mér og núna er ég hamingjusöm ofar öllu. Þau fara aftur út til Noregs næsta miðvikudag og ég er kvíðin, reyni þó að hugsa sem minnst um það núna og bara að njóta þess að hafa þau hjá mér. Ég einfaldlega tími ekki að missa úr eina einustu mínútu með þeim og hef þess vegna ekkert bloggað. En, yfir í annað - hvolpurinn minn fótbrotnaði í síðustu viku og er með risastórar umbúðir á fætinum. Hann stendur sig barasta mjög vel litli spaðinn með fótinn svona en það verður samt að viðurkennast að hann er mjööööög hallærislegur. Það er stundum algjör brandari að fylgjast með honum skakklappast út um allt með þessar þykku umbúðir í eftirdragi.
En, núna ætla ég að kúra með ungunum mínum yfir góðum Simpson þætti, svo yfir og út kæra fólk. Bless.
Bloggar | 19.6.2008 | 23:19 (breytt 28.6.2008 kl. 20:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)



Bloggar | 7.6.2008 | 22:33 (breytt kl. 22:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ég googlaði nafnið Ísabella bara af forvitni og stóðst ekki mátið, bara varð að taka fyndnustu fyrirsagnirnar úr niðurstöðum gúgglsins og copy-paste hingað inn. ENJOY
- Ísabella er alltaf á ferðinni, ef maður leggur hana einhverstaðar niður þá er hún fljót að klaungrast eitthvað í burtu.- Ég sýni sjálf Ísabellu frá Ólafsvöllum.
- Ferdinand og Ísabella gáfu út tilskipun um að allir Gyðingar skyldu yfirgefa Spán.
- Ísabella er byrjuð í vöggustofu.
-Ísabella er farinn að labba ef maður heldur í aðra höndina og hún getur sagt mamma, pabbi, datt og hæ, svo er hún komin með 11 tennur en er ennþá svotil sköllótt.
- Ég á reyndar eitt gæludýr sjálf en það er hún Ísabella, hún er páfagaukur og er orðin alveg hundgömul eða 8 -9 ára gömul. Hún er eldri en ég!
- Ísabella er fædd 17. Október 2007 og er að öllu óbreittu næsta ræktunnar læða í Kolsholtsræktun.
- Ég og Ísabella mín erum á leiðinni á völlinn á morgun að ná í óákveðinn fjölda af málverjum.
bjargar helling að Ísabella er af tegundinni Nissan micra svo hún teygist bara eftir því hvað inn í hana þarf að fara.
- Á leikskólanum frekjast og alles og Ísabella er farin að skríða nokkur skref og fá fullt af tönnum það er spurníng með hvort að hún fái líka frekjuskarð.
- Á eftir ætla Hjördís og Ísabella að koma í heimsókn og á ég að segja ykkur hvað Ísabella var dugleg í gær!!! Hún sat sjálf ...
- Krúsó nauðgaði Ísabellu. Gaddemit ... Allt í einu heyra þau væl í Ísabellu og þau fara og tékka á þessu, en þá er Krúsó aftan á Ísabellu. ...
- Já, auðvitað er hún Ísabella skutla inní þessum hóp.
- Ísabella seldi kamelljónið og keypti sér nýja diskinn með Paris Hilton.
- Pokinn er ekki merktur,en innlegg í skó eru merktir Ísabella.
- Það var snilld að renna sér niður, ég og ísabella lentum alltaf í grjótinu.
- Við Ísabella lúlluðum líka í vögnunum okkar, það var eitthvað svo voða notalegt.
- Fellibylurinn Ísabella fór um austurströnd Bandaríkjanna í lok september 2003. Stærsta eyjan heitir Ísabella. Á henni sjást þrír gígar.
- Mestu framfarir : Ísabella
- Hvað með hana þá ef Ísabella er ekki búin að lesa hana.
- Þetta er að verða svoldið mikið þreyttur brandari að þú sért Ísabella.- Ísabella Ninja.
- Ég er ekki í alveg rosa stuði núna til að blogga en hún Ísabella er komin að skemmta mér.
- Ísabella gerir lítið annað en að safna orðaforða og krullum.
- Ísabella var að fá nýjan bílstól í dag og henni finnst hann æði.
- Svo kíkti ég í dýraríkið aðeins og keypti páskaföt á Ísabellu.
- Vil ekki að Ísabella fari í fegurðarsamkeppni.
- Kortið var hins vegar ekki til Ísabellu.
- Ísabella var sterklega þeirrar skoðunar að þessi hreyfanlega dúkka ætti ekki heima í fangi móður sinnar þar ætti hún sjálf heima.
- Ég og Ísabella, bróðir minn á hana.
- Ísabella og Ferdinand sigruðu það stríð að lokum.
- Hrafn og Ísabella hafa komið hingað að leika, alltaf gaman.
- Hvað með þig Ísabella.. ertu farin að gróa föst við meginlandið eða?
- En ég er sérstakur ritari fyrir Ísabellu núna þar sem hún getur ekki tengst netinu ...- Ísabella - þessi rólyndis krakki er sko ekki mjög róleg í dag.
- Ísabella frá Ólafsvöllum besti hvolpur tegundar.
- Róbert ætlar að koma Ísabellu niður og koma svo. ... Stelpurnar voru sáttar við það sem hann kom með og Ísabella úaði mikið.
- Fyrstu tónleikar Ísabellu voru haldnir áðan. Hún lék fjórhent.
- Að sjálfsögðu lagði Ísabella saman einn og einn og fékk út tvo.
- Ísabella fékk bara glimrandi góðar einkunnir og góðan vitnisburð. .... Vinkona Ísabellu er að gista hjá henni og gasa stuð á þeim.
- Í dag fékkst það staðfest að Ísabella er hvolpafull. Ísabella er afar gott eintak af Bulldog.
- Við blasti Snigladjöfla-dóttirin Ísabella, mesta hörkutól norðan Alpafjalla.
- Sesselja fór líka á kostum sem Ísabella. Raddlega var hún fín.
- Pabbi og Ísabella voru eins og hafmeyjur og ég var alltaf að kippa Ísabellu upp úr vatninu.
- Ísabella stækkar og stækkar, komin með tvær litlar og hárbeittar tennur.
- Ísabella og Ronja leita sér að heimili!
- En allveg er Ísabella orðin 4780 grömm :) Hún stækkar og stækkar þessi elska.
- Ísabella að klæða sig í.
- Ísabella er grein sem finna má á Wikipediu.
- Basse hundurinn var alltaf hjá Ísabellu við matarborðið.
- Ég og Ísabella ætlum að vera úber-duglegar í ræktinni í sumar þannig að við getum spókað okkur í míníbikiníunum.
- Þegar Ísabella var sofnuð voru hundarnir hjá mér í stofunni, þeir vöktu okkur.
- Við ákváðum að nefna hana Ísabella Straumland - af þeirri einskærri tilviljun að hún var sætust Í heimi geimi ...
- En annars er oft mikið gaman hjá okkur á Geirsnefi, allavega ef hún Ísabella er ekki á staðnum!
- Ísabellu og Óskari finnst ég frekar leiðinleg þessa dagana.
- Ísabella biður kærlega að heilsa.
Bloggar | 31.5.2008 | 14:32 (breytt kl. 15:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)